23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í B-deild Alþingistíðinda. (521)

86. mál, alþýðutryggingar

*Héðinn Valdimarsson:

Viðvíkjandi því, sem hv. 8. landsk. gat um, að hv. þm. Snæf. hefði sagt hæstv. ráðh., að hann mundi vera með frv. með fyrirvara, vil ég taka það fram, að ég heyrði hann segja, að hann væri með frv. fyrirvaralaust, svo að ég veit, að hv. 1. landsk. hefir rétt fyrir sér í þessu efni. Hinsvegar veit ég ekki, hvað hv. þm. Snæf. hefir sagt við hæstv. atvmrh. í annað skipti.