06.12.1937
Efri deild: 43. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (1048)

101. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

1) JJós:

Ég vil gera grein fyrir afstöðu minni til frv. Með því að þetta er fram borið af þeim flokkum, sem bera ábyrgð á ríkisstj., og ekki hefir verið tekið tillit til neinna brtt. frá óðrum flokkum hér í þessari hv. deild, en ég er hinsvegar ósamþykkur mörgum ákvæðum þessa frv., þá tel ég rétt að vera hlutlaus við atkvgr. og greiði því ekki atkv. — (BSt og PZ: Þetta er ekki rétt; það er nýbúið að samþ. brtt. fra stjórnarandstæðingum).