18.12.1937
Neðri deild: 54. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (1068)

101. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

Einar Olgeirsson:

Ég verð að segja það, að ég virði það ákaflega mikið af hæstv. forseta, að hann skuli vera svo röggsamur sem hann er, en hann hefir hingað til ekki verið eins strangur í þessu efni eins og hann var nú. Ég vildi því mega vænta þess, að hann nú breytti þessari ákvörðun sinni.