21.12.1937
Efri deild: 55. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)

101. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta er komið aftur frá Nd. og hefir tekið þeim breyt., að felld hefir verið úr frv. ein gr., 19. gr. Ég sé ekki, að það skipti miklu máli, þó að þessi gr. væri felld í burt, með því að það raskar ekki efni frv. Þeir 2 menn úr allshn., sem aðallega fjölluðu um málið, leggja til, að frv. verði samþ. eins og það er nú.