24.11.1937
Neðri deild: 34. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

56. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

Forseti (JörB):

Mér skildist á umr., að þess væri fremur óskað, að frestað yrði að bera upp brtt. á þskj. 149, við 2. gr., þangað til séð yrði um afgreiðslu á brtt. hv. þm. Borgf. Ég veit ekki, hvort átti að skoða þetta sem ósk. (GÞ: Brtt. hv. 6. þm. Reykv. gengur lengra). Og ef þess er ekki sérstaklega óskað að bera brtt. á þskj. 149 síðar upp, þá mun ég bera þær upp eins og venja er til, eins og þær eru stílaðar við greinar frv.