21.12.1937
Neðri deild: 56. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)
106. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég lét svo um mælt í hv. Ed., að ég teldi réttast, að ríkið væri ekki ábyrgð á stj. verksmiðjanna, en tæki veð í eignum fyrirtækisins fyrir stofnlánum. Ég bað hv. n. í Ed. að rannsaka, hvort ákvæði 7. gr. væru ekki nægileg til að koma þessu í framkvæmd. Hv. n. kallaði mig að vísu ekki á fund sinn, en ég þykist þó vita, að henni hefir ekki fundizt þetta ákvæði fullnægjandi til að tryggja að fullu veð fyrir stofnlánunum. Og ég lít svo á, að eins og nú er, geti ríkissjóður ekki tekið veð fyrir þessu, það verði að vera áhættufé.
Ég held ekki, að hægt sé að segja, eins og hæstv. atvmrh., að þetta ákvæði myndi koma í veg fyrir, að verksmiðjurnar gætu fengið hæfilegt rekstrarlán, enda munu vera fáar verksmiðjur hér á landi, sem hægt er að segja um, að þær séu skuldlaus eign. — Hitt tel ég, að ákvæðið um. að ríkissjóður innheimti vexti af stofnlánum, eigi að standa óbreytt.