15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (1443)
124. mál, alþýðutryggingar
*Einar Olgeirsson:
Ég get verið stuttorður um þær brtt., sem ég flyt hér, enda eru þær nokkuð ljósar fyrir þá, sem á annað borð hafa fylgzt með umr., sérstaklega því, sem fram fór við 2. umr. — 1. brtt. gengur í þá átt að tryggja það, að þeir, sem nú yrðu útilokaðir frá tryggingu samkvæmt þessu frv., hefðu réttindi til hlunninda samkv. l. um ríkisframfærslu sjúkra manna og örkumla. — 2. brtt. gengur út á það, að tryggingarstofnunin hafi einhver tök þarna gagnvart læknunum, þannig að ef ekki náist hagkvæmir samningar við þá, þá sé hægt að beita þessu ákvæði. Gagnvart sjúkrahúsunum væri hinsvegar ekki hægt að beita því, vegna þess, að þá mundi það einungis koma niður á sjúklingunum. — 3. brtt. miðar að því að reyna að tryggja það, að gamalmennum verði borguð út ellilaun. Það verði stefnt að því, að í stað framfærslustyrks komi ellilaun án alls réttindamissis. — Ég ætla svo ekki að fjölyrða meira um þessar brtt., en það verður sem sagt okkar lokaúrræði að reyna að koma þessum till. í gegn til þess að reyna að afmá verstu annmarka á frv.