15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1123 í B-deild Alþingistíðinda. (1447)

124. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hv. þm. N.-Þ. við brtt. á þskj. 380, að á eftir orðunum „nr. 10 15. apríl 1928“ komi: og sjóðfélagar í eftirlaunasjóði Útvegsbanka Íslands. Brtt. er skrifleg og of seint fram komin, svo það þarf tvennskonar afbrigði.