16.12.1937
Efri deild: 51. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1527)
26. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
*Jón Baldvinsson:
Mál þetta er tekið á dagskrá án þess að það hafi hlotið þá meðferð, sem vant er í n., og hæstv. fjmrh. hefir skýrt frá orsökinni til þess, sem sé að það var bandormur í málinu. Eftir hans beiðni var það geymt hjá n., þar til séð var, hvað fjvn. gerði í till. til breyt. á fjárl. Nú liggur þetta ekki fyrir ennþá, svo fjhn. Ed. sé kunnugt um, því það mun ekki vera fyrr en í kvöld, að þessar till. koma fram fyrir sjónir þm., en hæstv. fjmrh. hefir vitanlega haft aðstöðu til að vita þetta fyrr en við úr fjhn., og því geri ég ráð fyrir, að málið hafi verið tekið á dagskrá.
Má segja, að það sé ekki sök n. í þessu máli, að ekki liggur fyrir nál.