20.11.1937
Neðri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1196 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Frsm. minni hl. (Ólafur Thors) :

Út af fyrirspurn hv. 5. þm. Reykv. verð ég að segja það, að ég álít, að það skipti ekki neinu máli, hvor leiðin verður farin. Fyrir mér vakir að fara þá leið, sem tryggir útgerðarmönnum þann fyllsta rétt, sem þeir geta öðlazt. Ég hygg, að það vaki það sama fyrir okkur báðum í þessu efni, sem sé það, að koma því til leiðar, að útgerðarmenn geti sjálfir keypt vöruna þar, sem þeim er það hagkvæmast og ódýrast.