20.11.1937
Neðri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)

63. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Frsm. minni hl. (Ólafur Thors) :

Ég geri ráð fyrir, að það geti átt við rök að styðjast, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði, að fullt eftirlit þyrfti að hafa með framkvæmd þessa ákvæðis, þannig að fyrirbyggja fjárflótta út úr landinu. En hvað viðvíkur till. 2 hv. þm. úr tölu Sjálfstfl. sem hv. þm. minntist á, þá skal ég taka það fram, að ég efast ekki um, að það gæti fengizt samkomulag við þá um hana, ef slíkt ákvæði sem þetta yrði samþ. hér nú.