14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (1644)

Afgreiðsla þingmála

*Forseti (JBald) :

Að því er snertir till. þær, sem vísað var til fjvn. og um hefir verið rætt af tveimur hv. þm., vil ég vísa til hv. n. og óska þess, að hún láti frá sér heyra um þessar till. hið bráðasta. En viðvíkjandi þeim till., sem enn eru eigi teknar á dagskrá, þá hafa verið miklar annir í deildum, og svo hafa verið fjárlögin í sameinuðu þingi, sem einnig taka dálítinn tíma. En ég mun að sjálfsögðu taka þessar till. á dagskrá.