11.11.1937
Sameinað þing: 5. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1682)

Þingvíti

Ólafur Thors:

Ég veit ekki, hvort fjarvera þessara hv. þm. hefir verið getið í bókun funda, en margir hafa tekið eftir því, að þingsæti þeirra stóðu auð. Ekki svo að skilja, að þessara hv. þm. hafi verið saknað, og hvað snertir hv. þm. Ísaf., þá mun flestum þykja skemmtilegra að sjá hans stól auðan heldur en setinn.