30.11.1937
Neðri deild: 39. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (1758)

25. mál, niðursuðuverksmiðjur

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson):

Það gegnir í rann og veru sama máli um þetta frv. og önnur þau mál, sem hér hafa verið rædd í d. í sambandi við breyt. á l. um fiskimálanefnd, útflutning á fiski, hagnýtingu markaða o. fl., sem nú hefir verið afgr. hér til 3. umr. Þessi mál öll hafa verið rædd talsvert hér við fyrri umr., og sé ég ekki ástæðu til að fara frekar út í þær umr. en þegar hefir verið gert, en leyfi mér aðeins að vísa til þeirrar dagskrár, sem meiri hl. sjútvn. hefir borið hér fram, og óska, að hún verði samþ., þar sem málið er afgr. á annan hátt með frv. um breyt. á l. um fiskimálan., og því fé, sem lagt verður til fiskimálasjóðs auk þess, sem áður var.