09.11.1937
Efri deild: 23. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í C-deild Alþingistíðinda. (2153)

72. mál, mæðiveikin

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég ætla ekki að ræða þetta mál á þessu stigi. Eins og hv. flm. tók fram, er þetta mál nú til athugunar í landbúnaðarnefndunum, sérstaklega landbn. Nd. Og hv. flm. er vitanlega kunnugt, að þetta mál hlaut nokkurn undirbúning af hálfu ríkisstj. áður en þing hófst. Jafnframt hafa bændur sjálfir undirbúið þetta mál nú meðan þingstörf hafa staðið yfir. Úr því að sakir standa nú þannig, þá held ég, að ekki sé hægt að líta á þetta frv. nema sem yfirboð, svipað því sem Bændafl. hefir áður flutt. Sé ég því ekki ástæðu til að ræða málið nú. því að það kemur innan skamms í heild frá landbn.; það er mér kunnugt.