14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (2217)

79. mál, héraðsskólar

Frsm. (Bjarni Bjarnason):

Ástæðan fyrir því, að þessari till. var vísað til fjvn., var nú m. a. og sérstaklega sú, að hæstv. atvmrh., sem með kennslumálin fer, var ekki viðstaddur. Meður því að hann er ekki heldur viðstaddur í dag, þá mun ég ekki lengja umr. um þetta mál, en lýsa yfir, að fjvn. hefir lagt einróma til, að till. verði samþ., og vildi ég óska, að svo yrði.