17.12.1937
Sameinað þing: 15. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (2221)

79. mál, héraðsskólar

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég sé mér fært að mæla með þessari till. eins og hún liggur fyrir. Á síðasta þingi lá fyrir frv. um, að héraðsskólinn á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp kæmist undir l. um héraðsskóla og nyti sömu hlunninda og þeir, án þess hann þyrfti að öllu leyti að sníðast eftir þeim l., en hann starfar mjög í þá átt, sem þessi till. stefnir. Ég hefi lagt til, að sérstök rannsókn yrði hafin í þessu máli, hvernig það má bezt fara. Get ég út frá því mælt með, að þessi till. verði samþ.