14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í D-deild Alþingistíðinda. (2273)

138. mál, jarðhitarannsókn

*Bjarni Bjarnason:

Hv. þm. Mýr. hélt því fram, að ég vildi leiða mál þetta af réttum grundvelli, Það er ekki rétt. Ég gat þess,. að ef frv. hefði orðið að l., þá myndi hafa verið samþ. í fjvn. fjárveiting til málsins. En til þess að koma ekki aftan að neinum, get ég þess, að ég vil fá málið leyst á grundvelli frv. á þskj. 117, en ef málið kemur til fjvn. í því formi, sem hér er ætlazt til, þá mun ég ekki greiða fyrir því, af þeim ástæðum, sem ég hefi áður tilgreint. Af því að nú er eftir aðeins lítill hluti þingtímans, en fjvn. á erfitt með að mæta þörfum og óskum allra hv. þm., sé ég ekki ástæðu til að samþ. nú þessa þáltill., sem myndi hafa mikil útgjöld í för með sér.