22.11.1937
Efri deild: 32. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í D-deild Alþingistíðinda. (2411)

102. mál, stýrimanna- og vélfræðiskóli í Reykjavík

Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :

Ég heyri, að hæstv. forseti úrskurðar þessa þáltill. frá. En ég hefi orðið þess var, að hér í þessari hv. d. hafa komið fram alveg eins þáltill. og þessi. Og það er ekki nema lítils háttar breyt., sem þarf að gera á till., til þess að hún ekki heiti fjárhagsleg till., og breyt. þessa mætti gera með því aðeins að fella niður úr till. orðin „og hrinda í framkvæmd“ í fyrri málsl. till. Ég álít ótrúlegt, ef ekki er hægt að bera þessa þáltill. þannig fram hér.