27.11.1937
Efri deild: 37. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í D-deild Alþingistíðinda. (2509)

74. mál, mæðiveiki

*Fyrirspyrjandi (Brynjólfur Bjarnason):

Hæstv. forsrh. upplýsti, að það þyrfti að koma beiðni frá héruðunum um, að slíkum styrk yrði útbýtt. En ef slík beiðni kæmi fram, mundi henni þá verða sinnt ?

Svo vil ég í öðru lagi, í sambandi við þá aths., sem hæstv. ráðh. gerði um það, að séreign sveitarsjóðanna í bjargráðasjóði mundi hrökkva skammt, spyrja hann um það, hvort hann telji ekki möguleika á því að útvega viðbótarfé til þeirra hluta, ef á þyrfti að halda, annarsstaðar frá.