05.11.1937
Efri deild: 20. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (285)

68. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Flm. (Beraharð Stefánsson):

Í grg. þessa frv. eru teknar fram þær ástæður, er því valda, að frv. er borið fram, og ég hefi engu við grg. að bæta. Eins og þar er tekið fram, er þetta frv. flutt fyrir hönd hæstv. fjmrh., og ef menn kunna að óska frekari skýringa við þessa umr. en gefnar ern í grg., vænti ég, að hann verði fús til að gefa þær. — Ég legg til, að málinu verði vísað til hv. fjhn.umr. lokinni.