17.11.1937
Neðri deild: 29. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (301)

68. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Frv. þetta er komið frá hv. Ed., og þar sem hv. þm. er kunnugt um ástæðurnar fyrir því, ætla ég ekki að hafa um það langa framsögu, en vísa til grg. Frv. fer fram á heimild til handa ríkisstj. til að taka innanlandslán, að upphæð 3 millj. kr., til greiðslu á ósamningsbundnum skuldum ríkissjóðs, sem myndazt hafa undanfarin 3 ár.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2.umr. og fjhn.