20.11.1937
Neðri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (449)

97. mál, skatta- og tollaviðauki 1938

Flm. (Skúli Guðmundsson) :

Hér er farið fram á framlengingu á nokkrum heimildum, sem nú eru í lögum til að innheimta ríkissjóðsgjöld með viðauka. Það virðist ekki minni þörf á þessum heimildum heldur en undanfarið, og því höfum við flutt þetta frv. um, að þessar heimildir gildi áfram fyrir 1938.