17.12.1937
Sameinað þing: 15. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
1. mál, fjárlög 1938
Forseti (JBald) :
Brtt. einstakra hv. þm. eru ekki enn komnar fram, og þykir mér ekki sanngjarnt að ætlast til, að þeir tali fyrir þeim meðan svo er. Ég vil geta þess, að ég ætla mér að hafa fund síðdegis í dag, og vildi ég þá reyna að koma af sem mestu af umræðunni, vegna útvarpsumræðnanna í kvöld, en þær verða einnig annað kvöld. Eftir tímann frá kl. eitt til kl. sjö á morgun vildi ég óska, að hv. þm. hefðu lokið að mæla fyrir brtt. sínum, svo að atkvgr. um fjárlagafrv. geti hafizt án tafar á mánudag. — Ég mun nú fresta fundi til kl. 5½. [Fundarhlé. ]