08.12.1937
Neðri deild: 44. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (597)

103. mál, verðlag á vörum

Forseti (JörB) :

Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hæstv. atvmrh. við brtt. á þskj. 230, um að í stað orðsins „nauðsynjavörutegundum“ í meginmáli till. komi: vörutegundum. Þessi brtt. er of seint fram komin, auk þess sem hún er skrifleg, og þarf því tvenn afbrigði til þess að hana megi taka til meðferðar.