22.11.1937
Neðri deild: 32. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (682)
100. mál, þurrmjólk í brauð o. fl.
Sveinbjörn Högnason:
Ég þarf ekki að taka rækilega fram efni þessa frv., þar sem það er kunnugt. Þetta frv. var flutt á síðasta þingi af hv. 7. landsk. og er nú flutt aftur svo að segja óbreytt. Það er aðeins það ákvæði sett nýtt inn í þetta frv. frá því frv., sem flutt var á þinginu í fyrra, að það megi styrkja þær stöðvar, sem settar eru upp til að vinna þurrmjólk, eftir sömu reglum, sem gilda um styrk til fullkominna mjólkurbúa.
Frv. miðar að því takmarki að auka markað fyrir mjólk hér innanlands, og jafnframt að koma í veg fyrir innflutning mjólkur hingað, en þótt ótrúlegt megi virðast, hafa undanfarið verið fluttir hingað inn 3000–4000 pt. á ári til súkkulaði- og sælgætisgerðar. Innanlandsmarkaðinn má auka stórum með því að fyrirskipa blöndun þurrmjólkur í brauð. Frv. því, sem flutt var um þetta efni í fyrra, fylgdi ýtarleg grg. frá dr. Vestdal, og er henni útbýtt nú ásamt frv. Sést m. a., hve ástatt er nú annarsstaðar um þurrmjólkurvinnslu. Stofnkostnaður slíkra stöðva er miklu minni en margir munu halda. Þannig kosta vélar til allstórrar stöðvar ekki yfir 15–20 þús., og byggingar þurfa ekki að vera mjög dýrar.
Frv. er, eins og ég hefi þegar sagt, borið fram með tilliti til þess, hve mjólkurmarkaðurinn er þröngur innanlands, og vegna þess óþarfa og hneykslanlega innflutnings á mjólk, sem verið hefir.