18.12.1937
Efri deild: 52. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (745)

113. mál, hafnargerð á Suðureyri

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti!

Þetta frv. er komið frá Nd., og eru öll þessi frv. um hafnargerðir steypt í sama mót. N. hefir athugað málið og leggur eindregið til, að það verði samþ., enda er hér um heimildarl. að ræða sem koma ekki til framkvæmda fyrr en fé er til þess veitt í fjárl.