18.12.1937
Sameinað þing: 16. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

1. mál, fjárlög 1938

Pétur Halldórsson:

Ég á brtt. við 16. gr. frv. um það að auka fé til framlags Sundhallar

innar í Reykjavík um 80000 kr., en eftir að hæstv. fjmrh. hefir lýst yfir því, að hann muni greiða þetta fé, svo sem til stendur og óskar eftir, að þetta sé ekki tekið á fjárl. að þessu sinni, þá fellst ég á, að þessi brtt. verði ekki borin upp, heldur tek ég hana til baka.