15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (895)

140. mál, mæðiveikin

Forseti (JörB):

Ég vil á það benda, að ef málið á að ganga til 2. umr. samstundis, verður umr. að vera lokið, því að það eru hér mál á dagskrá, sem eru miklu eldri. Og ég hafði treyst, að þetta málefni gengi umræðulaust við 1. umr. Hv. þm. V.-Húnv. hefir nú kvatt sér hljóðs, og vil ég spyrja hann, hvort hann geti ekki geymt sína ræðu til 2. umr.