05.05.1938
Efri deild: 63. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (1043)

136. mál, gerðardómur í farmannakaupdeilu

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég veit ekki, hvort það eru nokkur sérstök atriði, sem hv. 1. þm. Reykv. vill athuga, en það hefir verið tekið svo í málið, að ég vildi gjarnan, að því yrði lokið fljótt og með góðu samkomulagi. Ef ætti að vísa því til n. hér og láta það fá þó að ekki væri nema 10–20 mín. athugun, væri ef til vill hægt að koma því svo fyrir, að allshn. beggja d. athuguðu málið. Það væri hægt að vísa því til Ed.n., en óska eftir því, að allshn. Nd. kæmi á fund hennar, svo að ekki þyrfti að visa málinu til n. í N d.