26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)
106. mál, niðurjöfnunarmenn sjótjóns
*Frsm. (Bergur Jónsson):
Hv. þm. Snæf. og ég ætlum að bera fram skrifl. brtt. við 2. gr. frv., 3. tölul., þannig að liðurinn hljóði svo: „Hann skal hafa aflað sér fræðilegrar sérþekkingar á sjórétti og sjóvátryggingarrétti við erlendan háskóla eigi skemur en eitt ár“. Þessi brtt. er að nokkru leyti flutt með tilliti til þess unga manns, sem hefir rannsakað þetta og búið sig undir það, og vitanlega er hægt að breyta þessum 1. seinna. Annars fer þetta í framkvæmdinni mest eftir því, hvað ríkisstj. vill ganga ríkt eftir að heimta skilríki í hvert skipti.
Hitt getur ekki komið til mála, að krefjast þess, að fátækir kandídatar fari að innrita sig fyrir stórfé í erlenda háskóla, þótt þeir taki þetta sérnám um eins árs bil.
Ég vona því, að þessi brtt., sem ég ætla að afhenda hæstv. forseta, verði samþ.