03.05.1938
Sameinað þing: 24. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (112)

1. mál, fjárlög 1939

Forseti (HG):

Að þessu sinni fara fram þrjár umferðir flokkanna, og eru tvær fyrstu umferðirnar 15 mínútur fyrir hvern flokk í hverri umferð, en í síðustu umferð 10 mínútur fyrir hvern flokk. Þessir tala í 1. umferð: Fyrir Bændafl. talar hv. 4. landsk. StSt, fyrir Alþfl. þm. Seyðf., HG, fyrir Sjálfstfl. hv. þm. Snæf., TT, fyrir Framsfl. hv. þm. S.- Þ., JJ, og fyrir Kommfl. hv. 5. þm. Reykv., EOl. Fyrstur tekur til máls fyrir hönd Bændafl. hv. 4. landsk., StSt, og talar í 15 mín.