02.05.1938
Neðri deild: 59. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (1124)

88. mál, þilplötur o. fl. úr torfi

Vilmundur Jónsson:

Mér þykir hálfleiðinlegt að sjá í texta íslenzkra laga jafnámátlegt orð og „sellulose“, sem heitir á íslenzku tréni. Ég vildi því mega bera fram skrifl. brtt. við 1. gr. frv., þannig að í stað byggingarpappa og seilulose“ komi: byggingarpappa og tréni (sellulose).