11.04.1938
Efri deild: 46. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (1162)

61. mál, ríkisborgararéttur

1) ErlÞ:

Með því að ég tel ekki rétt að víkja frá því, að öll skilríki þurfi að vera fyrir hendi, þegur veita á ríkisborgararétt, en get ekki séð, að þessum manni, sem hér um ræðir, geri neitt til, þó að hann bíði til næsta þings með að fá ríkisborgararétt þá segi ég nei.