18.03.1938
Efri deild: 28. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)

57. mál, eftirlit með skipum

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ræða hv. þm. Vestm. gefur mér ekki tilefni til verulegra andsvara. Ég stend aðeins upp til þess að þakka honum fyrir, að hann vill athuga málið, eins og ég benti rækilega á, að nauðsynlegt væri. Sé ég ekki ástæðu til að fara frekar út í þann ágreining, sem er á milli okkar, á þessu stigi málsins.