11.05.1938
Neðri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)
102. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja botnvörpuskipa
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ástæðan til þess að ég minntist á þetta áðan, var sumpart það, sem hv. frsm. sagði um það, en líka sú, að hv. þm. Borgf. var búinn að minnast á það við mig, að hann vildi fá það skýrt, hvernig bæri að skilja þetta. Ég álít, að allir ættu að geta verið sammála um þann skilning, að þessi heimild nái til allra útsvara útgerðarfyrirtækja, en þó ekki af öðrum rekstri en útgerð, þó að sömu menn hafi hann á hendi. Eins getur þetta atriði komið til greina í sambandi við spurninguna um það, hvað telja beri útgerðarfyrirtæki. En það verður að ákveða í reglugerð. Í frv. mun hafa verið visað frá till., sem átti að ákveða þetta nánar, vegna þess að talið var, að slíkt ætti heima í reglugerð. En þessu verður að gera skil, ef um er að ræða blönduð fyrirtæki, sem bæði reka útgerð og annað. Þetta getur reynzt nokkuð erfitt, en það verður þó að leggja á vald þeirra aðilja, sem eiga að framkvæma þessi l. Þó sé ég ekki, að þetta ætti að þurfa að valda verulegum árekstri í framkvæmd. Það gæti t. d. komið til greina, að útgerðarfyrirtæki greiddi lægra útsvar af verzlun, ef mikið tap yrði á útgerðinni. Annars held ég ekki, að mikill munur sé á þessu og því, sem hv. þm. G.- K. hugsar sér.