19.02.1938
Neðri deild: 4. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

5. mál, ýmis gjöld 1939 með viðauka

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er nákvæmlega shlj. l., sem samþ. voru á síðasta þingi, og fer það fram á framlenging nokkurra viðauka á sköttum og tollum, sem hafa verið í gildi um nokkurt skeið.

Sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. þetta nú, en óska eftir, að því verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og fjhn.