28.04.1938
Neðri deild: 56. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1185 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)

99. mál, iðnaðarnám

*Emil Jónsson:

Ég gat þess við l. umr. þessa máls, að það mundi verða sýnd öll viðleitni af hálfu iðnn. til þess að reyna að ná samkomulagi við flm. N. hefir unnið nokkuð að þessu, en ekki með fullum árangri enn sem komið er, og mun n. því halda þessu áfram. En til þess að tefja ekki framgang málsins, hefir orðið samkomulag við hæstv. forseta um, að það gangi óátalið af n. til næstu umr.