18.02.1938
Efri deild: 3. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (188)

2. mál, verðtollur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Með þessu frv. er farið fram á, að framlengt sé gildi l. um verðtoll og bráðabirgðaverðtoll fyrir árið 1939. Frv. er shlj. löggjöf um þetta efni, sem selt var á fyrra þinginu 1937, og er hv. þdm. málið svo kunnugt, að ég þarf ekki að fjölyrða um það. Ég legg til, að málinu verði vísað til fjhn. að lokinni umr.