22.04.1938
Neðri deild: 51. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í B-deild Alþingistíðinda. (1882)

34. mál, atvinna við siglingar

*Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):

Sjútvn. hefir fjallað um þetta mál, og meiri hl., við hv. þm. Ak. og hv. þm. N.-Þ., leggjum til, að frv. verði samþ. óbreytt. Hv. 6. þm. Reykv. áskildi sér rétt til að hafa óbundnar hendur og hefir borið fram brtt. á þskj. 267, sem ég geri ráð fyrir, að hann geri grein fyrir. En hv. þm. Ísaf. talaði helzt um að afgr. málið með rökst. dagskrá, sem ekki er enn fram komin.