26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1904)

34. mál, atvinna við siglingar

*Einar Olgeirsson:

Út af þeim umr., sem farið hafa fram um þetta mál, langar mig til þess að beina þeirri fyrirspurn til n., sem um málið hefir fjallað. hvort hún hafi síðan kynnt sér málið nokkuð frekar eða átt tal við fulltrúa frá þeim fagfélögum, sem hér eiga sérstaklega hlut að máli. Það komu fram svo margar raddir um það við 2. umr., að ófært væri að atkvgr. málið án þess að athuga það betur.