07.05.1938
Neðri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)

28. mál, rekstrarlánafélög

Frsm. (Sigurður Kristjánsson):

Frv. þetta er komið frá hv. Ed., og var það afgr. þaðan án ágreinings. Hv. sjútvn. þessarar d. hefir athugað frv. og mælir með því óbreyttu. Að sönnu hefir einn hv. nm. óbundnar hendur um að koma með brtt., en ég veit þó ekki, hvort hann gerir það. En að öðru leyti er málið ágreiningslaust af n. hálfu.