12.05.1938
Efri deild: 76. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)

28. mál, rekstrarlánafélög

*Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):

Ég er ekki viðbúinn því að biðja hæstv. ráðh. neinnar afsökunar á því, sem ég sagði, og ekki heldur að taka við ókvæðisorðum í garð sjálfstæðismanna fyrir það, að þeir hafi féflett útvegsmenn, frá þeim manni, sem er með sinni fjármálapólitík að féfletta alla landsmenn og gera þá aumari og fátækari. Ég þykist hafa fullt leyfi til að gera aths. við þau mál, sem ég hefi barizt fyrir, þótt á elleftu stundu sé, þegar mér þykja þau hafa verið stórskemmd.