12.05.1938
Sameinað þing: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)

Afgreiðsla þingmála

Jón Pálmason:

Ég sé, að hæstv. forseti hefir ekki tekið á dagskrá fund eftir fund till. frá mér og hv. 2. þm. Skagf. viðvíkjandi söltun matjessíldar á Húnaflóa og Skagafirði, svo það er auðséð, að meiningin er, að hún nái ekki fram að ganga. Af því tilefni vil ég leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. atvmrh., hvort hann sé reiðubúinn til að gefa yfirlýsingu um það, að hann muni vinna að því, að matjessíldarsöltun verði leyfð þar á þessu sumri.