27.04.1938
Neðri deild: 55. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1450 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)
Þingseta varaþingmanna
*Forseti (JörB):
Út af fyrirspurn hv. 1. þm. Rang. viðvíkjandi fjarveru hv. 4. þm. Reykv. vil ég geta þess, að rétt eftir að hann kom heim úr sinni utanför fékk ég orðsendingu frá honum, þess efnis, að hann væri forfallaður í bili frá að mæta hér á Alþ. Ég hefi nú alveg nýverið fengið frá honum orðsendingu um, að hann muni mæta á Alþ. á föstudaginn kemur. Ég hefi að vísu ekki nýlega grennslazt eftir, hvort sjúkdómur hefir hindrað hv. l. þm. Reykv. frá að mæta hér, en ég hygg þó, að hann hafi haft ríka ástæðu til að mæta ekki, en ég get þó ekki fullyrt neitt um það.
Ég er sammála hv. 1. þm. Rang. um það, að hv. þm. beri í þessu efni að fara eftir þeim fyrirmælum kosningalaganna, að ef þeir sakir sinna embættisstarfa þurfa að hverfa frá þingstörfum, eins og borið hefir tvisvar við með hv. 4. þm. Reykv., þá beri þeim, þegar þeim erindrekstri er lokið, undir eins að mæta hér á Alþ. og taka þátt í þingstörfum, en sakir þess að ég fékk skeyti frá hv. 4. þm. Reykv. um forföll hans fyrst til að byrja með, hefi ég gengið út frá því, að hann af lögmætum ástæðum hafi verið hindraður frá því að mæta hér á þingfundum og taka þátt í þingstörfum. Ég verð að treysta svo þegnskap hv. þdm., hans jafnt sem annara og annara jafnt sem hans, að menn komi, þegar þeir eru ekki hindraðir af lögmætum ástæðum frá því að mæta á fundum Alþ., og taka þátt í fundarstörfum.