22.03.1938
Neðri deild: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)

Ráðherraskipti

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég geri ráð fyrir því, eins og það er orðað í þessari tilkynningu, sem ég hefi hér getið, að lausn togaradeilunnar sé að nálgast og að þess verði ekki langt að bíða, að hún sé að fullu leyst.