28.03.1938
Neðri deild: 35. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)
Ráðherraskipti
*Ólafur Thors:
Ég vildi leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forsrh., hvort hann muni nú ætla sér að gefa Alþ. upplýsingar um það. hvernig komið sé með fyrirhugaða stjórnarmyndun.
Það er nú orðið alllangt síðan, eins og hv. þm. er kunnugt, að hæstv. stj. í raun og veru gat ekki talizt lýðræðisstjórn, og ég geri ráð fyrir, að það sé sameiginlegur vilji allra flokka þingsins, að ekki yrði mjög langt úr þessu, að slíkt ástand héldist.
Mér hafði skilizt á hæstv. forsrh., að hann teldi líkur á, að hann myndi einmitt í dag geta gefið Alþ. skýrslu um málið. Ég vil því leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hans, hvort þess sé að vænta í dag og hvað komið sé hans rannsókn í þessu máli.