31.03.1938
Sameinað þing: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1461 í B-deild Alþingistíðinda. (2184)

Ráðherraskipti

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Hv. þm. G.-K. spurði um það, hvort um það væri samið milli þeirra flokka, sem standa að stj., að gerðardómslögin skyldu verða framkvæmd. Um þetta atriði er að sjálfsögðu ekki samið, og hefi ég þar sömu aðstöðu eins og ég hafði, þegar þessi l. voru sett. Það er vitanlega ekki samið um það, hvort l., sem Alþ. er nýbúið að setja, verði framkvæmd eða ekki. Það er svo sjálfsagður hlutur, að það þarf ekki að tala um það.