28.04.1938
Neðri deild: 56. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í C-deild Alþingistíðinda. (2625)
120. mál, útvarpsráð
Bergur Jónsson:
Ég vil bara benda á það, að það hefir verið algild regla á Alþ., að frv., sem flutt eru af n., er ekki vísað til n., hvorki aftur til n., sem flutti frv., eða til annara n. Ég vil þess vegna mótmæla þeirri till., sem fram hefir komið, að vísa þessu máli til n.