19.04.1938
Efri deild: 49. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í C-deild Alþingistíðinda. (2699)

85. mál, skrifstofufé sýslumanna og bæjarfógeta o. fl.

Magnús Jónsson:

Ég ætlaði að vita, hvort ekki væri hægt að fá málinu frestað. Það var haldinn fundur um málið í morgun, en ég vissi ekki um hann, en af því að þetta er 3. umr., óska ég eftir dálítið annari breyt., sem ég hefði viljað vita. hvort n. vildi ekki taka til athugunar um leið. — Ég vil skjóta því til hv. frsm., að ég hafði ekki hugmynd um þennan fund.